Alla daga eykst hamingjan á mínu heimili.
Eins og tveir vinir mínir hafa bloggað um í dag og gær þá er
sko Alvilda ástfangin uppfyrir haus !!!!! Hérna á heimilinu
eru allir sælir og glaðir og það sem skiptir mig mestu máli
eins og alltaf eru litlu prinsarnir mínir. Þeir skemmtu sér
konunglega í gær og eltu Ali um allt. Þeir eru sko góðir vinir
hans og líkar vel við hann og ég held að það segi allt sem
þarf. Börnum er venjulega treystandi sem mannþekkjurum. Hann
var að halda á þeim og þegar ég leit inn í stofuna í eitt
skiptið þá lágu þeir á sitthvoru lærinu á honum með koddana
sína og hann var að strjúka á þeim bakið !!!!! Svo er nú ekki
minnst spennandi að fá að tala ensku við hann (maður þarf nú
að æfa sig í svoleiðis þó maður sé bara 4 eða 5
ára).
Í
gær bað Axel mig að búa til "arabískt brauð", honum finnst það svo
svakalega gott. Vissulega varð ég við þeirri beðni. Meðan ég var að
baka brauðið heyrði ég sagt við hliðina á mér "ég er að stelast í
arabíska brauðið" og sá litla hendi laumast upp á diskinn, grípa
eitt brauðið og þjóta út úr eldhúsinu (hahaha ég held að hann hafi
borðað 6 svona brauð eða svo, hann ætlaði aldrei að hætta). Allir
fengu sinn skammt af því og það er bakað flesta daga hérna. Það er
aldrei að vita nema ég gefi einhverjum útvöldum uppskriftina af
þessu brauði en það er heilmikil handavinna á bak við það. Hafið
bara samband ef þið viljið vita eitthvað um
það.
Aumingja Ali var alveg gáttaður á Emil í gær !!!
Rétt á meðan ég var að undirbúa kvöldmatinn og baka brauðið þá fékk
Emil sér einn disk af búðing. Ali sagði við hann heldurðu að þú
hafir list á matnum á eftir ef þú borðar þennan búðing núna? (haha
ég er enn að hlæja að þessari frábæru spurningu). Ég sagði Ali að
hann þyrfti aldrei að hafa áhyggjur af listaleysi Emils. Eftir
búðinginn fékk hann sér einn disk af kornflexi. Ekki lét hann það
duga heldur hesthúsaði hann einhver stykki af arabísku brauði. Hann
borðaði reynar ekki mikinn kvöldmat á réttum tíma allavega (en hann
raðaði í sig síðar um kvöldið). Frú Ólavía fékk sér svo steik í
morgunmat eins og áður og drakk gos með (er ekki ólifnaðurinn
yndislegur?). Jæja núna er að fara að dúlla sér í
eldhúsinu.
Eigið góðan dag og Guð veri með ykkur
!!